Þerrir.
Hvaða orðum var farið um heyþurrk (þerrimó, þerrir, flæsa, tekur af heyi, móar í hey, heyþurrkur, góður þerrir, brakandi þerrir, o.s.frv.)? Lýsið aðgæslu manna og athugun í sambandi við veður til heyþerris. Lýsið athugun manna varðandi það, hvort hægt væri að fara í hey, hvort tekið væri af heyi og hvort hægt væri að taka hey saman. Greinið einnig frá orðum sem notuð voru um þetta.
Segið frá orðum og athugun manna í sambandi við það, er rigndi í hálfþurrt eða þurrt hey eða því, er keppst var við að bjarga heyi undan regni.
Voru nokkrir ákveðnir þerriboðar sem menn tóku mark á, m.a. í atferli dýra eða fugla, í hljóði sjávar, í útliti himins, í dögg eða áfalli heys eða öðru? Lýsið þessu með tilliti til þurrks og hirðingar á heyi. Var eitthvað, sem varast þurfti í atferli manna eða háttum á teig í sambandi við heyþurrk?

