Skrá 6. Að koma mjólk í mat

I. Þjóðtrú.

1. Voru mjólkurílát á einhvern hátt helguð að loknum þvotti eða um leið og mólk var hellt í þau og þá á hvern hátt (sign yfir þau, blásið í kross yfir þau t.d.)?
2. Þekkjast munnlegar sagnir eða orðtök um tilbera (snakk)?
3. Var eitthvert mark tekið á því, ef illa gekk að strokka?
4. Boðaði það nokkuð sérstakt ef helltist niður úr strokknum eða öðru mjólkuríláti?
5. Var kross markaður á skökuna, er tekið var af strokknum? Hvernig?
6. Var krossað á allar hliðar smérbitlinga, sem ætlaður var í leigur eða til sölu og þá á hvern hátt (skákross t.d.)?
7. Var tekið mark á því gagnvart veðri eða öðru, ef mikið ólgraði í skyrsánum?
8. Var spáð fyrir veðri eftir skán , sem safnaðist ofan á sýru?
9. Hvað boðaði mjólk eða mjólkurmatur í draumi?
10. Var gripið til vissra spurninga, er mönnum svelgdist á mat eða fengu hiksta (Hefurðu sofið á lyfjadallinum? Hefurðu stolið rjóma? t.d.)? Í hvaða tilgangi?
11. Kannast menn við annað, er snertir mjólkurmat í þjóðsiðum og þjóðtrú?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica