Þjónustan
Var orðið þjónusta almennt notað um konu sem annaðist um ígangsföt, sokka og skó karlmanna? Lýsið þjónustubrögðum (störfum). Hafði hver karlmaður sína ákveðnu þjónustu þar sem vinnukonur voru fleiri en ein í heimili? Var það þá hlutverk hennar að hirða blaut eða gatslitin plögg að kvöldi, þvo, þurrka, gera við, mæla skó, brjóta sokka á hæl o.s.frv. og hafa tilbúið að morgni? Gegndi húsfreyja þá e.t.v. sama hlutverki fyrir bónda sinn? Hvernig var þessu háttað þar sem færra fólk var í heimili? Fengu þjónustur gjöf frá þeim, er þær önnuðust um með þessum hætti, við eitthvert ákveðið tækifæri?

