Töðugjöld.
Var ævinlega gerður dagamunur í mat eða drykk, er búið var að alhirða tún? Hvað nefndist þetta? Var það bundið við einhvern ákveðinn dag vikunnar, sunnudag t.d.? Voru veitingar þá hinar sömu frá ári til árs? Lýsið þeim. Á hvaða tíma dagsins voru þær fram bornar?

