Töfl og spil.
Segið frá skemmtun barna við töfl eða spil. Hvaða töfl voru um hönd höfð (refskák, milla, manntafl eða önnur)? Segið frá taflborðum í refskák og millu. Með hverju var leikið?
Hvaða spil voru einkum iðkuð (alkort, púkk, marías t.d. eða önnur)? Var ákveðið orðafar tengt töflum eða spilum, sem nú er að mestu niðurfellt í mæltu máli? Best væri, ef þið gætuð einnig lýst spilareglum, því þær munu ekki allstaðar hafa verið eins.

