Skrá 13. Ull og tóvinna I

Togkembing

Hvernig var togið sett í kambinn? Var það nefnt nokkuð (að mata kambinn t.d.)? Var kamburinn því nær fylltur af togi eða aðeins lítið sett í hann í senn? Hvernig hélt konan kömbunum fyrir sér, er hún kembdi? Vissi kamburinn (tindarnir) í vinstri hendi upp, en í hægri hendi niður, er kembt var? Skipti konan á kömbum á víxl, eftir því sem annar fylltist, en hinn tæmdist? Voru þelhnökrar greiddir úr toginu, jafnóðum og kembt var? Hvenær þótti fullkembt til þess að lyppa fram úr eða framan af kömbunum? Var haft jafnmikið í hvorum kambi til að lyppa? Var togkemban nefnd nokkuð (fax t.d.)? Var hún tekin saman í hnefa vinstri handar, áður en farið var að lyppa? Hvernig var farið að því að lyppa tog? Hvað var það nefnt (að lyppa, lopa framan af, draga toga t.d.)? Var haldið um kembuna með vinstri hendi en lyppað með hægri? Var lyppað upp í lófann? Var talað um að þuma upp í lófann? Hvað nefndist lyppan (lopi, lyppa, togi t.d.)? Var lyppan höfð mismunandi gild (gróf)?
Var aðeins hluti af kembunni lyppaður í fyrstu atrennu? Var afgangurinn í kömbunum kembdur í einu eða tvennu lagi? Lýsið því. Hvað nefndist úrgangurinn, sem eftir var í kömbunum í annarri eða þriðju kembingu (undirkemba t.d.)? Hvað var gert við hana? Voru lyppurnar lagðar saman hlið við hlið, og teygðar, þegar búið var að lyppa eina kembingu, og ein lyppa gerð úr þeim, eða var hver lyppa spunnin út af fyrir sig?
Þekkist þessi málsháttur: Það er auðgrætt lyppusárið? Um hvað var hann hafður?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica