Togspuni
Spann konan lyppuna upp úr lárnum eða úr kjöltu sinni? Þekktist önnur aðferð, t.d. að konan vefði toglyppunni um úlnlið sér og þá sérstaklega, ef spunnið var á halasnældu? Var togþráður hafður mismunandi grófur, eftir því í hvað átti að nota hann Var jafnan staðið við spunann, ef spunnið var á halasnældu? Var ein færa við snælduspuna eða tvinningu nefnd nokkuð? Hvað nefndist aðferðin við að vinda upp á snælduna (snældukings t.d.)? Hvaða aðferðir notuðu konur við að vinda af snældu (snældan sett milli fóta eða haldið á henni)? Voru viss orð til um áferð þráðar, sem spunninn var á snældu eða með öðrum hætti (bláþráður, groddi, svörgull t.d.)? Hvað nefndist arða eða hnökri á þræði (loki t.d.)? Hvað nefndist arða eða hnökri á þræði (loki t.d.)? Var talað um, að þráður drægi loka? Segið frá tegundum togþráðar (hnappagataþráður, rekkvoðaþráður, skinnfataþráður, skóþráður o.s.frv.). Var mismunandi ull notuð í einstakar þráðartegundir? Hvað er að segja um tvinningu og þræðingar í nálar?
Hvenær lagðist niður að spinna þráð á halasnældu?
Segið frá vísum, orðtökum eða einstökum orðum, sem varða spuna ("Það var garn hún Gyða spann)" o.s.frv. "að snúa snældunni sinni" í sambandi við skapgerð eða veður, lo. spunabirta, spunabjart, spunastutt t.d.

