Skrá 13. Ull og tóvinna I
Tóvinna
Nefndist ullarvinna einu nafni tóvinna? Voru mismundandi orð til um tóvinnu, eftir því hvort hún var gróf eða fín? Voru orðin no. sperl og so. sperla eða sperðla t.d. notuð um það, er ull var unnin í gjarðir, reiptögl, beisli og hnappheldur?
Hvenær hófst tóvinna venjulega að hausti? Hvernig var hagað vinnutíma? Hvaða þátt tóku karlmenn í tóvinnu almennt?
Var unnið að ákveðnum verkefnum á vissum tíma (vefnaður t.d. fyrri hluta vetrar)? Hvenær að vetri lauk tóvinnu að jafnaði?

