Tvinning

Segið frá tvinningu á þræði eða bandi. Hvernig var unnið að því að tvinna (setið, staðið, staðið við loftsgat t.d.)? Var snúið að sér eða frá sér, þegar tvinnað var? Hvað nefndist það, er þræðir féllu ekki saman, sökum misslaka í tvinningu (gálmi, mistvinningur t.d.)? Var talað um undirsnúð og yfirsnúð á tvinnuðu bandi? Var bandið haft mismunandi snart í tvinningu, eftir því í hvað átti að nota það? Hvað nefndist tvinnað band, miðað við það, hve margþætt það var (tvíband, þríband, þrinnað band o.s. frv.)? Í hvað var þríband einkum notað? Segið frá tvinningu á rokk o.s. frv.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica