Skrá 14. Ull og tóvinna II
Ullartæing
Lýsið sem vandlegast, hvernig unnið var að því að tæja þel. Var heilt reyfi táið í einu, eða var það hlutað í sundur? Hverjir unnu einkum þetta verk (spunakonan eða aðrir heimilismenn)? Hvaða reglur voru börnum lagðar við að tæja ull? Hvaða orð voru notuð um þetta verk (ullartó, ullartæing o.s.frv.)? Kunna menn nokkur orðtök eða einstakar vísur, er lúta að þessu verki (Illt er að sitja við ullartó t.d.)?

