Skrá 13. Ull og tóvinna I

Ullarþvottur

Segið frá ullarþvotti. Minnist m.a. aftirfarandi atriða: Var keytu (hlandi) safnað til ullarþvottar (á ullina)? Ver sérstakt kerald eða tunna til þeirrra nota (hlandkerald)? Var ullin venjulega þvegin við læk? Voru gerðar uppistöður í læki fyrir ullarþvottinn? Voru hlóðir hlaðnar á lækjarbakkanum? Nefndust þær ullarhlóðir? Hvaða áhöld, önnur en pottur, voru notuð við ullarþvottinn? Hvernig var blandað í pottinn? Var mislit ull þvegin sér? Hvernig var ullarsuðunni háttað? Var hrært í ullinni með priki, meðan hún var í pottinum? Var ull í þvotti nenfd ullarþvæli? Var talað um "að hita á þvælið"? Var meis hafður ofan á pottinum til að setja ullina í, þegar hún var færð upp úr pottinum? Nefndist ákveðið magn af ull í þvæli eitthvað (ullarfila t.d.)? Var algengt, að kerald væri haft hjá ullarpottinum og ullin þvegin í því? Var þá ausið á hana úr pottinum? Var þá troðið á ullinni með berum fótum, þegar hún fór að kólna? Hvernig var skolun háttað? Voru til ullarkörfur úr víðitágum til að skola ull í? Voru heymeisar notaðir í sama tilgangi? Var ullin sett í hrúgur á lækjarbakkanum, þegar búið var að skola hana? Nefndust þær eitthvað (ullardrýlur t.d.)? Var ullin breidd samdægurs til þerris, ef veður leyfði? Hvar? Hvernig var hún flutt milli bæjar og þvottabóls (í sekkjum eða kláfum)? Minna örnefni á ullarþvott?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica