Uppbúið rúm o.fl.
Var það ákveðinn metnaður einstaklinga, vinnukvenna t.d. að eiga í rúmið sitt eða eiga uppbúið rúm og þá jafnframt til skiptanna á rúm?
Var algengt að geyma í rúminu ýmsa einkahluti, undir kodda eða sæng (föt, bækur, jafnvel kistla eða smáhirslur)? Var varúð viðhöfð í því að hafa aldrei sokka undir kodda? Var algengt að þurrka ýmis plögg í rúmi við líkamshitann (sokka t.d.)?
Hvað nefndist verkið við að ganga frá rúmum eftir fótaferð (að breiða yfir rúm t.d.)? Hve oft var búið um rúm (vikulega eða oftar)? Þekktist sá siður að signa (krossa) yfir rúm, er lokið var við að breiða yfir þau eða búa um þau?
Hve oft á ári var að jafnaði viðrað út úr rúmum? Var viss varúð viðhöfð í því að gera það t.d. ekki, er menn voru á sjó?

