Úrhleðsla

Nefndist starfið við að teyma heylest að heygarði til að taka ofan bagga eitthvað sérstakt (teyma inn í heygarð, teyma í garð, að garði t.d.)? Hvað nefndist starfið við að taka ofan heybagga (taka ofan, hleypa ofan t.d.)? Var tekið að nota önnur orð, er byrjað var að flytja heim hey á hleypiklökkum (steypiklökkum) eða bara heim (flytja heim) hey með heygrindum? Hvernig var unnið að því að taka ofan, er notaðir voru klyfberar með föstum klökkum (tréklökkum)?
Velti milliferðamaður böggum til hliðar við heygarð, til að greiða fyrir umferð eða annaðist heimamaður um það? Hvað var það nefnt, er böggum var hlaðið upp við heygarð til rýminda eða til að verja þá gegn regni (að bunka eða annað)? Hvernig var heyið borið upp í heystæðið?
Hvað nefndist starfið við að losa bagga úr böndum í heygarði (að losa úr böndum, leysa úr o.s.frv.)?
Hvað var nefnt starfið við að hlaða upp heyi í heystæði (hlaða úr t.d.)? Var gerður greinarmunur á hæfni manna við það verk (góður, slæmur úrhleðslumaður)? Hvað var það nefnt, er hlaðið var úr fyrstu hirðingu í tóman heygarð (kasta í tómt t.d.)? Hvað var gert við heystabba (heykleggja) í heygarði, fyrningu frá síðasta vetri? Var hann yfirleitt látinn standa óhreyfður eða kom fyrir, að hann var rifinn upp og settur saman við nýja heyið? Var mismunandi tegundum af heyi ekki blandað saman í sömu heystæðu (töðu, stör, valllendisgróðri, elftingu), og var reynt að skilja á milli mismunandi tegunda í hirðingu á teigi, þar sem gróðurskil voru?
Lýsið úrhleðslu á heyi og minnist m.a. eftirfarandi atriða: Úhleðslumaður vinnur verkið einn eða hefur hjálparmann til að velta að böggum og gera upp reipi. Hvernig var leyst úr? Hvernig voru reipi gerð upp, hvernig hnýtt saman, og hvað nefndist hnúturinn (reipahnútur t.d.)? Var gætt að því að hreinsa hey úr högldum, er gert var upp? Voru reipin gerð upp jafnóðum og leyst var úr eða þegar úrhleðslu var lokið?
Á hverju byggðist fyrst og fremst góð úrhleðsla á heyi (heyið ekki of mikið út í hliðar og slakki ekki í hliðar t.d.)? Hvað nefndist það, ef hey tók á sig halla í heygarði vegna slæmrar úrhleðslu eða þess, að í því hitnaði (heyið kastar úr sér, snarast o.s.frv.)?
Hvað nefndist verkið við að taka saman laust hey í baggastæðum, er úrhleðslu var að ljúka? Var nokkur þjóðtrú tengd því, hvernig heydreif var rakað úr baggastæðum, er úrhleðslu var að ljúka? Var hrífa notuð við það verk?
Var nokkur þjóðtrú tengd því, hvernig heydreif var rakað úr baggastæðum í heystæði eða hlöðu? Var varast að bera hrífu í hlöðu?
Var eitthvað sett í hey til að varna hita (salt, steinn, hella, höfuðbein af stórgripi t.d.)? Var til sérstök hella, ein eða fleiri, til að nota í þessum tilgangi frá ári til árs (heyhella, heygarðshella)? Þekktist sú þjóðtrú, að kýrhaus í heyi ætti að vernda þar kýrfóður fyrir spjöllum af hita?
Hvernig voru hliðar á heyi snyrtar, er úrhleðlslu lauk? Var það þá starf barna að fra í geilur til að taka upp laust hey og nema laust hey úr hliðum?
Var algengt að "gera eitt hey úr tveimur" eða fleirum í heygarði, ef vel heyjaðist? Hvað var það nefnt (að kasta saman t.d.)? Hvað nefnist heyið (samfella, samstæða t.d.)? Var ekki fyllt upp í geilina mill heyjanna, er gerð var samfella? Hvað nefndist hey, sem náði enda milli í heygarði (garðfast hey t.d.)? Hvað nefndist hey, sem ekki hafði fulla lengd þar (lön t.d.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica