Úrhleðsla í tótt eða kumli
Lýsið úrhleðslu á heyi í tótt eða kumli. Var byggingu þeirra á einhvern hátt hagað þannig, að auðvelt væri að koma þar að böggum? Var nokkur geil höfð milli heys og veggjar, eða náði heyið alveg út í veggi og út á veggi? Hvað nefndit það þá (veggseti t.d.)? Dró heyið nafn af tóttinni eða kumlinu, sem það var geymt í (tóttarhey, kuml t.d.)?

