Útfærsla, útseta.
Segið frá fyrstu útfærslu gömlu túnanna og hvernig að henni var unnið varðandi ræktun. Nefndist hún að upphafi eitthvað annað en tún (útseta t.d.)? Lýsið á hvern hátt þetta var e.t.v. tengt áveitum að upphafi, skurðgrefti (holræsum m.a.) með handverkfærum (skófla, kvísl, ræsaspaði), áframhaldandi sléttun á þýfi og uppgræðslu á sandi, eða grýttu landi. Var mold ekið í sand eða grýtt land til uppgræðslu? Var grjótnám úr grýttu landi notað í vörslugarða um það?

