Útlit mannsins.

Lýsið því, hvernig talið var, að hægt væri að ráða í skapgerð manns eða upplag út frá ákveðnum ytri einkennum (enni, augu, eyru, nef, spékoppar, hökuskarð o.s.frv.). Var um þetta talað í ákveðnum orðum eða orðasamböndum (skáldahrukkur, höfðingsenni, móeygur og mislyndur o.s.frv.)? Lýsið því einnig, hvernig fólk taldi sig geta ráðið af svip mannsins það, sem með honum bjó til góðs eða ills (býður af sér gott geð, ber með sér góðan þokka, gáfulegur, skuggalegur, svipljótur o.s.frv.).


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica