Vaðmál.

Lýsið uppistöðu vefjar (efni og gerð). Lýsið ívafi (efni og gerð). Lýsið litum (sauðarlitir, jurtalitir, útlendir litir). Segið frá munstrum, þar sem um þau var að ræða, og nöfnum á þeim.
Gerið grein fyrir vaðmáli til eftirtalinna nota:
a) spariföt kvenna (stakkpeysa, pils og peysufatasjal),
b) ígangsföt kvenna (treyjur, pils, hyrnur, kjólar),
c) reiðföt kvenna (treyja, pils),
d) spariföt karla,
e) ígangsföt karla,
f) nærfatavaðmál karla og kvenna (nærskyrtur, nærbuxur, nærpils t.d.),
g) rúmfatavaðmál (yfirrekkvoðir, undirrekkvoðir o.s.frv.),
h) skyrsíur og aðrar síur úr vaðmáli,
i) poka vaðmál (segið frá pokagerðum og pokaheitum),
j) vaðmál í reiðver, svo sem undirdekk,
k) vaðmál í segl,
l) vaðmál í tjöld,
m) önnur not vaðmáls á heimilum eða utan heimila.
Lýsið mismun vaðmálsvoða, miðað við fyrrgreind not. Voru vaðmálsvoðir sendar brott til litunar eða til að þrykkja í þá munstur?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica