Veðrið.
Veðrið hefur jafnan haft mikil áhrif á störf manna við slátt og á heyfeng. Menn eru beðnir að lýsa því, hversu hugsað var og talað um veður í sambandi við heystörf. Hvernig var talað um veður að því er tók til aðstæðna við orfaslátt? Hvernig var talað um veður að því, er tók til aðstæðna við ljárakstur? Hvernig var talað um veður í sambandi við óþerri um slátt, er hey tók að blikna á teigum? Hvernig var talað um veður, er líkindi voru til þurrks og taka fór af heyi til snúnings? Mikilsvert er að fá dæmi varðandi þetta. Annað þýðingarmikið atriði er veðurspár manna í sambandi við slátt og heystörf. Hvernig spáðu menn fyrir um rosa eða þerri af útliti lofts, hvernig af háttum dýra, fugla eða annars lífs, hvernig af draumum sínum? Voru nokkrir, sem spáðu fyrir um veður af t.d. skyrsafni í sánum? Áður hefur verið spurt um rosabletti og þerribletti í slægjum, en höfðu menn nokkur ráð til að breyta veðri sér í vil?

