Vinding
Var venjulega undið í hnykla af rokksnældum? Var lögð á það áhersla að vinda vel í hnykla? Hvað nefndust samstæðir vindlingar í hnykli (eikur, reikur t.d.)? Var eitthvert nafn til um illa undinn hnykil (geitahnoð, geitnaeikur t.d.)? Hvað orð voru notuð um hnykla, miðað við mismunandi stærð (gaukull, gauki, gauti, hnísill, hnoð, tísill o.s. frv.)? Lýsið því. Áttu konur sérstakar geymslur fyrir hnykla? Fóru þær eftir því, hvort um stóra eða litla hnykla var að ræða? Lýsið þeim. Voru hnyklar festir upp á band? Hvernig? Nefndist það eitthvað (hnyklakippa t.d.)? Var sérstök nál notuð við þetta (hnyklanál)? Lýsið henni.
Kannast menn við smáþulu í sambandi við hnykla, er svo byrjar: "Heyrt hef ég björninn brölta" o.s. frv.)? Segið frá henni.

