XI Skírn
1. Hvað var það kallað er barn var skírt nafni lifandi manns ("að skíra í höfuðið á" eða annað)? Var algengt að biðja manninn um nafnið?
2. Var talað um "að láta barn njóta nafns"? Hvað felst í því?
3. Hvað var það kallað ef barn var skírt nafni látins manns (skíra eða heita eftir t.d.)?
4. Var höfð ótrú á því að skíra eftir látnu barni eða manni sem hafði dáið í æsku?
5. Var því trúað að barn líktist þeim sem það var heitið eftir og hvað var það nefnt (að líkjast nafni t.d.)? Hvað var það nefnt ef þetta brást (að kafna undir nafni t.d.)?
6. Hvað var það kallað ef barn líktist í ætt sína (að því kippti í kynið t.d.)?
7. Hvað var það nefnt er ófeðrað barn líktist ákveðnum manni óskyldum í móðurætt (það sver sig í ættina t.d.)?
8. Var algengt að varpa hlutkesti um nöfn á óskírðu barni? Hvernig var það gert?
9. Hvað var það nefnt ef konu dreymdi látinn mann, einn frekar öðrum um meðgöngutímann (að hann vitjaði nafns t.d.)?
10. Var það yfirleitt tekið til greina og því trúað að barnið yrði gæfusnautt að öðrum kosti?
11. Létu foreldrar barn heita nöfnum sínum til að koma í veg fyrir að þeir eignuðust fleiri börn?
12. Var venja að gefa barni nafn manns sem nýlátinn var í kirkjusókninni, er það fæddist? Var það þá skírt við líkkistu hans? Hvar, heima eða í kirkjunni?
13. Hver hélt barninu undir skírn (ljósmóðir t.d.)?
14. Var venjulega skírt í kirkju?
15. Nefndist úrfelli eða regn, er barn var flutt til skírnar, skírnarskúr? Þekkist nokkur trú varðandi skírnarskúr?
16. Var nokkur trú varðandi börn sem skírð voru milli pistils og guðspjalls í messu eða um skírnardag og skírnarstund?
17. Lýsið skírnarfötum (skírnarkjóll, skírnarhúfa t.d.).
18. Kannast menn við málsháttinn: "Það er ekki vandskírt fátækra barn"?
19. Hver skírði skemmri skírn, ef þörf krafði (ljósmóðirin t.d.)?
20. Var því trúað að veikt barn myndi öðlast bata við skírn?
21. Var tekið mark á því ef barn grét mikið við skírn?
22. Var höfð trú á skírnarvatni til lækninga? Hvernig?
23. Hvar var skírnarvatninu hellt niður (í baðstofuþekju yfir rúmi föður, skvett innan um baðstofuna, hellt í hreina (gróna) jörð t.d.)?
24. Voru börnum gefnar skírnargjafir? Hvað helst?
25. Var algengt að klippa lokk úr hári barns eftir skírnina og geyma? Hvað nefndist hann (skírnarhár t.d.)?
26. Hvað voru börn annars gömul er byrjað var að klippa hár þeirra og neglur?
27. Voru gestir við skírnina? Var þá gerður dagamunur í mat og drykk? Lýsið skírnarveislu.
28. Kannast menn við orðið skírnarpeli? Í hvað merkingu?

