Skrá 1. Spurt um sauðfé

Sláturtíð

Hvenær hófst sláturtíð og hve lengi stóð hún yfir? Hvenær var talið að kindur tækju að ganga úr haustholdum (þorna) og var það nokkuð breytilegt eftir því hver kindin var (sauður, hrútur,kvíaær,lambsuga, lambsgota, gamalær, lamb)? Var betra að slátra seinni hluta viku en fyrri (sbr. laugardagur til lukku)?

Lesa meira
 

Slátrun

Hvað hét staðurinn þar sem skepnum var slátrað (blóðvöllur t.d.)?

Hvað hétu áhöld sem notuð voru við slátrun (skurðarhnífur, fyrirristuhnífur, blóðtrog, sláturtrog, blóðhrísla, blóðvöndur, blóðspaði, blóðkolla o.s.frv.)? Lýsið þeim. Var blóðtrogið einnig notað til annarra þarfa? Var sama blóðhrísla notuð frá ári til árs? Hvenær var fyrst byrjað að aflífa sauðkindur með byssu?

Lesa meira
 

Fláning

Hvað kallaðist gæran við strjúpann (blóðháls, blóðstorkur eða annað)? Hvað var það kallað einu nafni að flá sauðkind og sundra henni ("að gera hana til" eða annað)? Hvernig var rist fyrir á gærunni áður en fláning hófst? Var rist fyrir með sérstökum hætti ef nota átti skinnið í sjóklæði og þá hvernig? Var oft fleginn belgur af sauðfé og hvernig var þá rist fyrir? Lesa meira
 

Farið innan í

Hvernig var bundið fyrir vélindað áður en farið var innaní?

Hvernig var unnið að því að fara innan í? Lýsið því í aðalatriðum?

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica