Horn, bein o.fl.
Stóð á sama, hvernig um málbein var hirt, ef ekkert ómálga barn var á bænum?
Þekktist nokkur trú um smjörvölu (gleypubein) (að maður yrði jarðeigandi af að gleypa hana, að hundur dræpist af því að gleypa hana, að hún væri drottning í álögum t.d.), undir hvaða nafni gekk hún (smjörvala, smjörvalur, gleypubein eða annað), og kannast menn við orðtakið: "Forðaðu mér frá fjárdauða fyrst ég forðaði þér frá hundskjafti" í þessu sambandi?
Hvað var gert við sauðarvölur (notaðar sem árennur (árenningar), til að vinda band á eða annað)? Hvað átti sá í vændum, sem gleypti sauðarvölu (100 sauða eign eða annað)? Voru völurnar notaðar sem spávölur og hvernig? Þekktist önnur trú í sambandi við sauðarvölur (reynt hvort þær flytu í vatni og þá settar í fjárhúsveggi t.d. eða annað)?
Hvað var gert við fótleggi kinda (notaðir sem þráðaleggir, festing á hnappheldur, kýrbönd, mykjulaupa, við lambageldingu, á net o.s.frv.)? Hvað hét leggjasteinn á neti (leggjateinn, beinatigull eða annað)? Þekktist það, að bændur hlæðu fótleggjum í fjárhúsveggi (eða annars staðar) til fjárheilla? Var höfð ótrú á því að brjóta leggi eða bein kinda á sunnudögum og hvað lá við ef út af var brugðið? Var yfirleitt höfð ótrú á því að brjóta leggi kinda, þótt á öðrum dögum væri? Var sperran frá sperruleggnum nokkuð notuð (sem skóstíll, til að hæla (spýta) með skinn á veggi eða annað)?
Höfðu bændur ótrú á því að henda höfuðbeinum kinda fyrir hund eða hrafn?
Var nokkuð hirt um völustalla (hækilbein)?
Hvaða hluti smíðuð menn úr hrútshornum (hrútshyrninga, samsettar (giftar) hagldir, hálsbjargir o.s.frv.)? Þekktust orðin "læstar hagldir," hnithagldir, prestsekkjur, giftingarhögld og "giftar hagldir" um reipahagldir úr hrútshornum? Hvernig var smíð þeirra háttað? Hvað hét áhaldið sem læstar hagldir voru mótaðar á (hnittré eða annað)?
Voru öll hrútshorn jafnvel löguð í brák? Hvaða orð var notað um úrrétt hrútshorn (hornið er úrrétt, gert eða annað)?
Hvaða bein notuðu börn sem leikföng, og hvaða bein komu í stað hverrar dýrategundar?
Var nokkur átrúnaður á fékvörn. Hvar fannst hún og hvernig var hún varðveitt?
Segið frá fénál á sama hátt. Höfðu menn trú á því að kindur með fénál í þjólegg heppnuðust illa eða væru rýrar á hold?

