Skrá 1. Spurt um hross

Hross

Hvað felst í hugtakinu "að ganga sér til húðar" og orðinu húðarklár?

Voru orðin "að slá af" og afsláttarhross almennt notuð um hross sem eyða átti? Þekktist orðið niðurlagshross og þá í hvaða merkingu?

Hvað var það kallað, þegar hross voru slegin af vegna feitarinnar ("að slá af til ljósa" eða annað)? Hvað var gert við hrossakjöt, þegar aðeins var slegið af til ljósa (grafið niður eða kastað fyrir hund og hrafn)?

Voru hundar skammaðir á þennan hátt: "Svei þér, þú hefur étið folald"?

Hvenær var fyrst farið að nota hrossakjöt til manneldis? Hvaða álit var haft á þeim mönnum, sem þar riðu á vaðið? Gengu þeir undir nokkru sérstöku nafni? Hvernig var verkun hrossakjöts háttað? Hvað nefndist þefur af illa verkuðu hrossakjöti (hrælykt eða annað)?

Hvað var gangverð á afsláttarhrossum, áður en notkun hrossakjöts varð almenn? Þekktist það að afsláttarhross væru látin af hendi fyrir það eitt að skila hánni fullverkaðri?

Hvernig voru hross slegin af? Lýsið mismunandi aðferðum við dráp þeirra og greinið frá hver var algengust. Hvenær var byrjað að nota byssur við dráp hrossa og annarra stórgripa?

Var hrossablóð hirt í blóðmör eða til annarra nota?

Er hið sama að segja um fláningu hrossa og nautgripa? Hvað var það almennt kallað að gera hross til ("að birkja" eða var það aðeins notað um fláningu)?

Hvernig var hrossabræðingur búinn til? Var hrossakjöt, eða nokkuð af afurðum hrossa, notað til lækninga, svo að vitað sé?

Hvernig var verkun á hrosshám háttað? Voru hrosshár notuð í skæðaskinn eða til annars? Hvað var gert við búkhár hrossa?

Voru hrosshausar flegnir? Þekktist það að blesan frá nösum upp á enni væri skilin eftir óflegin? Hét hún skollablesa eða annað? Hvað gat leitt af því að skollablesan var flegin?

Hvaða not höfðu menn af hrossbeinum (leggir bútaðir á netateina, ísleggir o.s.frv.)? Voru hrosshófar notaðir til smíða (í hárgreiður, kamba og sylgjur t.d.)?

Segið frá öðru, sem sérstætt var við slátrun hrossa og hagnýtingu þeirra.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica