Var sérstakur svæfingarmaður, sem fór milli bæja, þar sem svæfingu var beitt, eða var það á hvers manns færi að fara með svæfingarjárn? Lýsið svæfingarjárni. Hvernig var mælt fyrir svæfingarholu á nautgrip? Hvaða orð voru notuð um verkið sjálft (að mænuskera, mænustinga, svæfa og no. mænustunga, svæfing eða önnur)? Hvernig var unnið að mænustungunni sjálfri?
Lesa meiraÞekktist það að nautskyllir væri notaður í skæðaskinn, sem peningapungur eða annað?
Voru lappir flegnar að lagklaufum? Hvað hétu skæklar á nautshúð (hemingar eða annað)? Voru þeir notaðir í skæðaskinn og þá hvernig hældir (spýttir)?
Lesa meiraVar bundið fyrir vélinda á nautgripum og þá hvernig?
Var aldrei rist aftur með (eða aftur úr) bringukolli, áður en farið var innan í? Var innvolsið numið brott úr krofi í heilu lagi? Gegndi sama máli um kross í hjarta og lifur og hættu af unglundseyrum nautgripa og kinda?
Lesa meiraVar sérstakur réttur búinn til úr vélinda á svipaðan hátt og sperðill eða ísbenja? Þekktist það að búið var til vélindiskerti og þá hvernig?
Lesa meira