Skrá 1. Spurt um nautgripi

Kálfar

Hvað kallaðist fóstur í kálffullri kú, sem felld var (aplakálfur eða annað)? Var óborinn kálfur nokkurn tíman notaður til matar og þá hvernig matreiddur? Var óborinn kálfur fleginn með venjulegum hætti eða tekinn af honum belgur?

Voru ungkálfar teknir úr karinu undir hnífinn? Var sagt um kálfa, sem bauluðu við blóðtrog, að þeir bæðu um líf? Nægði það til lífs?

Hvernig var kálfsblóð hagnýtt (gerður úr því blóðgrautur eða villibráð)? Lýsið slíkri matargerð.

Voru kálfar flegnir samdægurs og þeir voru skornir? Var um það rætt, að dauðir kálfar fitnuðu í skinninu og þá hve lengi?

Hvernig var kálfum komið fyrir á meðan á fláningu stóð?

Hvernig var gengið frá kálfsvinstri til hleypisgerðar?

Voru öll innyfli önnur notuð ný til matar?

Hvernig var garnostur gerður? Var hann einkum ætlaður fjóskonu til glaðnings eða þeim, sem tók á móti kálfinum, og þá með nokkru skilyrði?

Var kálfskjöt nokkurn tíman hengt upp til reykingar?

Var nýrnabein alltaf skammtað sem bóndabiti og hvernig var það hlutað úr krofi? Var einhver samsvarandi hluti kallaður konubiti, og ef svo var, hvað áttu hjónin að hafa unnið til að fá þessa bita?

Voru brjóskflögur við langlegg kálfa nefndar sérstöku nafni (kerlingareyra t.d.)? Gegndi sama máli um brjósk á kindaleggjum?

Hvað var gert við höfuðleður af kálfshausum (notað í fiskiólar, móttök, gagntök o.s.frv.)?




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica