Listi yfir hús í safninu
  • Grenjaðarstaður

Grenjaðarstaður í Aðaldal

  • Frá 15. júní til 15. ágúst er opið alla daga frá kl. 11-17.

Á Grenjaðarstað stendur stendur einn stærsti torfbær landsins. Af honum er mikil prýði og vert er að leggja leið sína á Grenjastað þegar ferðast eru um norðurland. 

Menningarmiðstöð Þingeyinga sér um rekstur Grenjaðarstaða.

Frá 1. júní - 15. ágúst er opið alla daga frá kl. 11-17. 

Aðgangseyrir                   2.000 kr. 
Heldri borgarar og námsmenn                1.700 kr. 
Öryrkjar og börn undir 16 ára aldri                       Frítt
Hópar 10+           1.700 kr. 
Félagar í Físos og ICOM (framvísa þarf skírteini)                       Frítt

Í hópi hinna stóru norðlensku torfbæja er gamla prestssetrið á Grenjaðarstað. Staðurinn var meðal tekjuhæstu kirkjustaða landsins. Í núverandi mynd sinni var bærinn að mestu reistur á síðari hluta 19. aldar og í veggjum hans er aðallega hraungrýti úr nágrenninu sem gefur honum sérstöðu meðal torfbæja.

Hugsanlegt er að kunnur forsmiður á sinni tíð, Árni Hallgrímsson frá Garðsá, sé höfundur frambæjarhúsanna en minna er vitað um bakhúsin. Í nyrsta bæjarhúsinu var starfrækt pósthús á síðari hluta 19. aldar og fram yfir aldamótin 1900. Bærinn þótti reisulegastur allra bæja í héraðinu og allt að þrír tugir manna voru þar í heimili. Búið var í gamla bænum fram til 1949.

Bærinn hefur verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá 1954 og skömmu síðar var hafin á honum umfangsmikil viðgerð, þar sem reynt var að færa hann í upprunalegt horf. Þeirri viðgerð lauk 1958, en síðan hefur alloft verið gert við bæinn, enda torfbæir gerðir úr forgengilegum efnum og þeir láta fljótt á sjá þegar ekki er lengur búið í þeim.Grenjadarstadur-1930_Sandvig  Hluti af Byggðasafni Þingeyinga hefur verið í bænum frá árinu 1958. Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar er að finna hér.