Listi yfir hús í safninu
  • Sauðanes

Sauðanes á Langanesi

  • Frá 15. júní til 15. ágúst, er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 11-17.

Talið er að kirkja hafi staðið á Sauðanesi allt frá 12. öld. Prestsbústaðurinn að Sauðanesi (Sauðaneshús) var byggður 1879 og Sauðaneskirkja 1889. Gamla prestshúsið er elsta steinhús í Þingeyjarsýslum og er gert úr steini er fluttur var langt að og tilhöggvinn á staðnum.

Frá 15. júní - 15. ágúst er opið alla daga frá kl. 11-17, nema mánudaga en þá er lokað. 

Aðgangseyrir                   1.200 kr. 
Heldri borgarar og námsmenn                900 kr. 
Öryrkjar og börn undir 16 ára aldri                       Frítt
Félagar í Físos og ICOM (framvísa þarf skírteini)                       Frítt

Sr. Vigfús Sigurðsson (1811-1889) kom til Sauðaness 1869 og hafði áður þjónað á Svalbarði í Þistilfirði. Hann lét reisa fyrir sig íbúðarhús úr tilhöggnum steini á árunum 1879-81, eitt örfárra steinhlaðinna húsa á landinu, og önnuðust verkið þeir bræður Björgólfur snikkari og Sveinn múrsmiður Brynjólfssynir, sem þá voru búsettir á Sauðanesi. Gríðarstór tekkbolur, sem rak á Langanesfjörur, var notaður í útidyraumbúnað og hurðir. Eftir að sr. Vigfús lést tók sr. Arnljótur Ólafsson (1823-1904) við Sauðanesi og gegndi brauðinu til dauðadags. Hann var landskunnur fyrir stjórnmálaafskipti og ritstörf. Síðast var búið í gamla íbúðarhúsinu 1955 og var þá tekið í notkun nýtt prestssetur, skammt frá því gamla.

Sauðanes var áður í miðju byggðar á Langanesi, en fólksflutningar hafa verið miklir á síðustu öld. Sauðanes hefur verið annálað og eftirsótt prestssetur frá alda öðli með miklum landkostum, m.a. æðarvarpi, reka, silungs- og selveiði. Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar er að finna hér