Listi yfir hús í safninu
  • Sjávarborgarkirkja

Sjávarborgarkirkja í Skagafirði

  • Opið daglega frá kl. 8-18. Gestir heimsækja húsið á eigin ábyrgð.

Sjávarborgarkirkja stendur á Borg, klettahöfða skammt frá Sauðárkróki, og rís hátt upp frá sléttlendinu í kring. Þarna var kirkjustaður að minnsta kosti frá því á 14. öld. Kirkjan er úr timbri, byggð af Ólafi Guðmundssyni frá Húsey árið 1853, og stóð húsið upphaflega rétt norðan gamla torfbæjarins. Húsið er opið gestum á eigin ábyrgð daglega 8-18. Vinsamlegast gangið vel um.

Yfirsmiður var Guðjón Jónsson snikkari á Akureyri, sem þekktur var fyrir listfengi. Húsgrindin er úr bindingsverki og klædd utan með slagþili á veggjum en rennisúð á þaki.Sjávarborgarkirkja
Árið 1891 var kirkjan lögð niður og notuð sem skemma um árabil en hún var flutt úr stað um 1930. Hún hefur verið hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands frá árinu 1972. Þá var henni fundinn enn nýr staður og var hún endurvígð árið 1983.
Elsta ritaða heimild um kirkju á Sjávarborg er frá um 1318. Hún var þá helguð Andrési postula.

Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar er að finna hér.