Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafninu við Suðurgötu

Fyrirlestrasalur

Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Fyrirlestrarsalur Þjóðminjasafnsins tekur 56 manns í sæti og hægt er að bæta við u.þ.b. 40 aukastólum. Þar er tölva, skjávarpi, tússtafla og myndvarpi. Hægt er að taka fyrirlestra upp (hljóð og mynd). Fyrirlesarar koma með efnið sitt á minniskubbi (pc-umhverfi). 

Vinsamlega fyllið út eyðublaðiðAthuga að nauðsynlegt er að vista skjalið fyrst á tölvunni áður en það er fyllt út. Skjalið á að vista undir nafni hópsins og senda í tölvupósti á netfangið bokun@thjodminjasafn.is.

Gjaldskrá 

Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands (opið 10-17) 
 Heill virkur dagur  90.000 kr. 
 Hálfur virkur dagur (1-4 klst.)  65.000 kr.
 Heill dagur, laugardagur eða sunnudagur  105.000 kr.
 Hálfur dagur, laugardagur eða sunnudagur, 1-4 klst.  75.000 kr.
 Upptaka af fyrirlestri  20.000 kr.
 Ef opna þarf fyrirlestrarsal fyrir kl. 10:00 greiðist aukalega  25.000 kr.


Þegar salur er bókaður þrisvar sinnum eða oftar á skömmum tíma v/ sama tilefnis (námskeið/fræðsluherferð o.fl) er veittur 10% afsláttur af öllum bókunum.

Þjónustustjóri eða vaktstjóri veitir alla minni háttar aðstoð, en ef viðveru tæknimanns er óskað kostar það 20.000 kr. á klst og þarf að bóka hann um leið og salur er pantaður.

fyrirlestrasalur

 

 

 

 

 

 

 

Reglur um móttökur og veitingar

  1. Allar merkingar fyrirtækja eru háðar sérstöku leyfi fulltrúa Þjóðminjasafns. Þær skal ekki hafa utandyra og aðeins í anddyri, í veitingastofu eða í fyrirlestrasal.
  2. Ekki er leyfilegt að fara með mat og drykk inn í  fyrirlestrasal.
  3. Veitingar skulu að öllu jöfnu bornar fram í veitingastofu, í anddyri eða í Myndasal (ef sýning þar leyfir).
  4. Veitingar skal bera fram eftir heimsókn í sýningarsali safnsins, ekki fyrir heimsóknina.
  5. Þeim sem skipuleggja hópheimsóknir og mótttökur í húsakynnum safnsins er heimilt að koma með eigin tónlistarflutning. Ákvörðun um slíkt skal þó ávallt borin undir fulltrúa Þjóðminjasafns.