Skipurit
Skipurit Þjóðminjasafns Íslands
Yfirlýstur tilgangur með skipuriti Þjóðminjasafns Íslands er að endurspegla hlutverk safnsins samkvæmt safnalögum nr. 106/2001 og þjóðminjalögum nr. 107/2001 og markmiðum þess og framtíðarsýn. Takmarkið er að auka samvinnu og samræður í innra starfi, auðvelda verkefnaskipulag með aukinni áherslu á tímabundin verkefni og gera starfið markvissara með bættri verkstjórn.

Þjóðminjasafn Íslands heyrir undir menntamálaráðuneytið og forstöðumaður safnsins er þjóðminjavörður. Svið stofnunarinnar eru þrjú, tvö kjarnasvið, rannsókna- og varðveislusvið og miðlunarsvið, og eitt stoðsvið, fjármála- og þjónustusvið.

