Samstarf
Fastir stuðnings- og samstarfsaðilar Þjóðminjasafnsins gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu safnsins og eiga mikinn þátt í því að starfsemi þess er svo kröftug sem verið hefur. Má þar sérstaklega nefna minjasöfnin í landinu og önnur höfuðsöfn, sem og þjóðmenningarstofnanir.
Mikilvægir samstarfsaðilar eru einnig vinafélag Þjóðminjasafns Íslands Minjar og saga, Minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright og þrír minningarsjóðir í vörslu Þjóðminjasafns: Minningarsjóður Ingibjargar G. Johnson, Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar og Minningarsjóður Philip Verrall, en sá sjóður er nýjasti minningarsjóðurinn í vörslu safnsins og sá langstærsti.
Landsvirkjun var bakhjarl Þjóðminjasafns Íslands árin 2001 til 2005. Í samvinnu við Landsvirkjun var stofnaður hópur hollvina Þjóðminjasafns Íslands með fulltrúum úr atvinnulífinu á árunum 2002-2005. Sá hópur tók að sér að afla safninu fjárstyrkja vegna sýningargerðar. Samstarfið gerði safninu unnt að leggja metnað og fagmennsku í forvörslu forngripa auk átaks í markaðsmálum og merkingu minjastaða. Árangur samstarfsins birtist einnig í fjölmörgum sérsýningum sem safnið stóð fyrir víða um land. Þjóðminjasafnið naut einnig samstarfs og stuðnings fleiri fyrirtækja.

