Minjar og saga

Vinafélag Þjóðminjasafns Íslands

Minjar og saga, vinafélag Þjóðminjasafnsins hefur starfað frá árinu 1988. Markmið þess er að styrkja starfsemi Þjóðminjasafnsins á ýmsan hátt og vekja skilning á mikilvægi þess að vel sé búið að helsta menningarsögulega safni þjóðarinnar.

Brennivínshornið sýnt gestumHelstu verkefni vinafélagsins eru að leita leiða til að afla Þjóðminjasafninu merkra muna sem álitið er að best séu varðveittir í safninu vegna menningar-sögulegs gildis þeirra.

Einnig leitar félagið leiða til þess að greiða fyrir sérstökum rannsóknarverkefnum.

Félagið efnir til fyrirlestra fræðimanna um fornleifar og aðrar þjóðminjar. Jafnframt hefur það staðið fyrir skoðunarferðum undir leiðsögn sérfræðinga á merka menningarsögulega staði.

Stjórn félagsins skipa Sverrir Kristinsson, formaður, Sigríður Th. Erlendsdóttir, Guðjón Friðriksson, Kristján Garðarsson, Grétar Jónasson, Katrín Fjeldsted og Sverrir Scheving Thorsteinsson.

Nánari upplýsingar veitir Bryndís Sverrisdóttir, bryndis.sverrisdottir@thjodminjasafn.is


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica