Minningarsjóðir

Minningarsjóður Ásu G. Wright

Minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright var stofnaður árið 1968. Hann er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands og skal standa straum af heimsóknum erlendra fræðimanna, er boðnir eru samkvæmt settum reglum til að flytja fræðilega fyrirlestra á vegum Þjóðminjasafnsins. Lesa meira
 

Minningarsjóður Philips Verrall

Þjóðminjasafni Íslands tæmdist árið 2006 myndarlegur arfur eftir Philip Verrall, endurskoðanda og Íslandsvin sem fæddist í Bretlandi 29. júní 1929 og lést þar 6. júní 2005. Minningarsjóður í hans nafni hefur það hlutverk samkvæmt staðfestri skipulagsskrá að kosta ýmis verkefni Þjóðminjasafnsins, einkum á sviði miðlunar, svo sem útgáfu vandaðra ritverka og gerð sérsýninga safnsins.

Lesa meira
 

Minningarsjóður Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnsen

Sjóðurinn er kenndur við Ingibjörgu Guðjónsdóttur Johnsen og er í eigu Þjóðminjasafns Íslands. Ingibjörg var fædd að Laugarbökkum í Ölfusi 2. júní 1901 og lést 29. nóvember 1997 í Vacaville í Kaliforníu. Hún ánafnaði Þjóðminjasafninu hluta eigna sinna og stofnaði safnið sjóðinn til minningar um hana í framhaldi af því árið 2001.

Lesa meira
 

Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar

 Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar og er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Helgi Sigurgeir var fæddur á Gilsá í Breiðdal 6. maí 1912 og lést í Reykjavík 4. október 1997 og ánafnaði Þjóðminjasafni Íslands hluta eigna sinna. Stofnandi sjóðsins er Þjóðminjasafn Íslands.

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica