Minningarsjóðir

Minningarsjóður Philips Verrall

Þjóðminjasafni Íslands tæmdist árið 2006 myndarlegur arfur eftir Philip Verrall, endurskoðanda og Íslandsvin sem fæddist í Bretlandi 29. júní 1929 og lést þar 6. júní 2005. Minningarsjóður í hans nafni hefur það hlutverk samkvæmt staðfestri skipulagsskrá að kosta ýmis verkefni Þjóðminjasafnsins, einkum á sviði miðlunar, svo sem útgáfu vandaðra ritverka og gerð sérsýninga safnsins.

Stjórn sjóðsins skipa fjórir aðilar. Auk þriggja starfsmanna Þjóðminjasafnsins, þjóðminjavarðar, sem jafnframt er formaður, sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs  og sviðsstjóra miðlunarsviðs á formaður Minja og sögu, vinafélags Þjóðminjasafnsins þar sæti. Stjórn sjóðsins ákveður úthlutanir úr honum og skal þeim varið í samræmi við stofnskrá.

Árið 2007 voru veittar 11 milljónir úr sjóðnum til sérsýninga safnsins, annars vegar ljósmyndasýningar og hins vegar sýningarinnar Á efsta degi.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica