Minningarsjóðir
Minningarsjóður Ásu G. Wright
Minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright var stofnaður árið 1968. Hann er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands og skal standa straum af heimsóknum erlendra fræðimanna, er boðnir eru samkvæmt settum reglum til að flytja fræðilega fyrirlestra á vegum Þjóðminjasafnsins.
Sjóðinn gaf Frú Ása til minningar um eftirtalda ættingja og vandamenn sína:
Foreldra hennar Arndísi Jónsdóttur háyfirdómara Péturssonar (1857-1936) og Guðmund Guðmundsson lækni (1853-1946).
Mann hennar Henry Newcome Wright, LLD., F.R.G.S., F.L.S., F.R.A.S. (1884-1955).
Systkini hennar Sturlu Guðmundsson (1883-1910), Sigþrúði Guðmundsdóttur (1884-1905) og Þóru Guðmundsdóttur Hermansson (1888-1918).
Móðursystur hennar Þóru Jónsdóttur (1858-1947) og Jón Magnússon forsætisráðherra (1859-1926).
Móðurbræður hennar Friðrik Jónsson, cand. theol. (1860-1938) og Sturlu Jónsson kaupmann (1861-1947).

