Minningarsjóðir

Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar

 Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar og er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Helgi Sigurgeir var fæddur á Gilsá í Breiðdal 6. maí 1912 og lést í Reykjavík 4. október 1997 og ánafnaði Þjóðminjasafni Íslands hluta eigna sinna. Stofnandi sjóðsins er Þjóðminjasafn Íslands.

 Tilgangur sjóðsins er að styrkja forvörslu- og öryggismál safngripa Þjóðminjasafns Íslands, sem og rannsóknir og úrvinnslu á póstsögulegu efni eða öðru efni innan safnsins að mati þjóðminjavarðar.

Stjórn sjóðsins skipa þrír starfsmenn Þjóðminjasafns Íslands: þjóðminjavörður, fagstjóri munasafns og fjármálastjóri. Þjóðminjavörður ákveður úthlutanir úr sjóðnum að tillögu stjórnar.

Sjóðurinn styrkti m.a. forvörsluátak vegna nýrrar grunnsýningar Þjóðminjasafnsins árin 2002 og 2003, nánar tiltekið viðgerð á Ögurbríkinni, sem er merk altarisbrík úr kirkjunni í Ögri við Ísafjarðardjúp, talin flæmskt verk frá því um 1500.

 


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica