Norsam
Söfnun, rannsóknir og miðlun upplýsinga um samtímaminjar
Norrænt samstarf
Norsam er stýrihópur sem fjallar um samtímasöfnun og rannsóknir á norrænum söfnum. Norsam var stofnað í desember 1997 eftir nokkurra ára undirbúning. Markmið og mikilvægt hlutverk stýrihópsins er að hvetja til samstarfs milli safna á Norðurlöndum, meðal annars í þeim tilgangi að stuðla að frekari þróun á samtímarannsóknum, samtímasöfnun og miðlun samtímaminja.
Samtökin stefna jafnframt að því að samtímasöguleg þemu verði tekin fyrir í norrænu samhengi og á norrænum tungumálum.
Söfnin sem eru aðilar að Norsam fá möguleika á að starfa með fagaðilum í víðara norrænu samhengi, víkka sjóndeildarhringinn og þróa eigin færni. Samtökin eru opin öllum söfnum sem áhuga hafa á að þróa samtímasöfnun gegnum norrænt samstarf.
Sæti í ráðinu eiga fulltrúar Þjóðminjasafnanna á Íslandi, Finnlandi og Danmörku en norski fulltrúinn er starfsmaður á Maihaugen í Lillehammer og fulltrúi Svía er starfsmaður samtímadeildarinnar á Nordiska museet í Stokkhólmi.

