Safnaráð

Safnaráð

Safnaráð starfar skv. safnalögum nr. 106/2001. Menntamálaráðherra skipar ráðið til fjögurra ára í senn en eftirfarandi fulltrúar eiga þar sæti: Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir einn fulltrúa auk varamanns og Félag íslenskra safna og safnmanna einn fulltrúa auk varamanns. Auk þeirra eiga sæti í ráðinu forstöðumenn höfuðsafna og varamenn er þeir tilnefna í sinn stað. Menntamálaráðherra skipar formann og varaformann úr hópi ráðsmanna. Rakel Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Safnaráðs sér um daglega starfsemi ráðsins. 

Hlutverk Safnaráðs er að vera samráðsvettvangur lista- og minjasafna og hefur ráðið eftirlit með söfnum í eigu ríkisins og söfnum sem hljóta ríkisstyrki. Eins er það hlutverk Safnaráðs að hafa umsjón með Safnasjóði, en sjóðurinn hefur þann tilgang að styrkja starfsemi safna sem heyra undir safnalög. Safnaráð úthlutar úr sjóðnum styrkjum til safna samkvæmt sérstökum úthlutunarreglum sem ráðið setur og menntamálaráðherra staðfestir.

Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu Safnaráðs www.safnarad.is


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica