Gegnir

Fullkomið bókasafnskerfi

Aðild Bóka- og heimildasafns Þjóðminjasafnsins að Gegni

Bóka- og heimildasafn Þjóðminjasafnsins hefur fulla aðild að GEGNI, bókasafnskerfi sem Menntamálaráðuneytið fyrir hönd ríkissjóðs og um 40 sveitarfélög reka fyrir öll helstu bókasöfn landsins.

Markmið kerfisins er að tryggja landsmönnum aðgang að margvíslegum bókfræðilegum upplýsingum. Það byggir á einni sameiginlegri skrá sem notendur leita í, annað hvort á safni eða á Netinu og þjónar öllum landsmönnum. Hér er um að ræða afar fullkomið bókasafnskerfi sem svarar ítrustu nútímakröfum og hefur það möguleika á að hýsa upplýsingar um tvær milljónir titla, fimm milljónir eintaka og fimm milljónir útlána á ári.

Vefslóð GEGNIS er: www.gegnir.is en einnig er hægt að fá frekari upplýsingar um kerfið hjá Landskerfi bókasafna á vefslóðinni: www.landskerfi.is


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica