Sérstök viðurkenning Þjóðminjasafns Íslands 2006

Viðurkenningar

 
Safn Evrópu 2006

Í kjölfar enduropnunar Þjóðminjasafnsins árið 2004 var safnið tilnefnt til þátttöku í samkeppni Evrópuráðs safna (European Museum Forum, EMF) um Safn Evrópu árið 2006 (European Museum of the Year 2006). Til greina í þá keppni koma ný söfn eða söfn sem lokið hafa umfangsmiklum breytingum eða endurskipulagningu á einhverjum þætti starfseminnar.
 
Niðurstaða dómnefndar var sú að Þjóðminjasafn Íslands var tilnefnt, ásamt tveimur öðrum söfnum í Evrópu, til sérstakrar viðurkenningar (Special Commendation) í samkeppninni 2006.  Við þessa miklu viðurkenningu var safnið komið í sérstakan hóp bestu safna Evrópu,  Best in Heritage - Group of Excellance.

 

Aðrar viðurkenningar:

Árið 2006 hlaut Þjóðminjasafnið viðurkenningu Sjálfsbjargar, landsambands fatlaðra, fyrir gott aðgengi fyrir alla. Við endurnýjun safnsins var sérstök áhersla lögð á aðgengismál og má því líta á viðurkenninguna sem staðfestingu á því að vel hafi til tekist.

SafnaverdlauninÁrið 2003 hlaut Þjóðminjasafn Íslands  Íslensku safnaverðlaunin fyrir vandaða útgáfu og sýningarhald Ljósmyndasafns Íslands, sem er sérstakt safn innan Þjóðminjasafnsins. Verðlaunin eru veitt ár hvert af Félagi íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS). Í áliti dómnefndar segir m.a.: „Metnaðarfullt rannsóknarstarf Myndadeildar Þjóðminjasafnsins er til fyrirmyndar og hefur haldist í hendur við vandaða útgáfu og sýningahald. Að mati dómnefndar Íslensku safnaverðlaunanna er rannsóknarstarf deildarinnar mikilvægur hornsteinn í starfi Þjóðminjasafnsins og öðrum söfnun mjög til hvatningar.“

Grapewine-Best Museum 2011Árið 2011 var Þjóðminjasafnið valið „Besta safnið í Reykjavík“ af tímaritinu Grapevine. Tímaritið, sem höfðar mest til erlendra ferðamanna, er eingöngu gefið út á ensku og í rökstuðningi þess fyrir valinu segir: „Anyone interested in Icelandic history will enjoy the highly ambitious exhibition at the National Museum, which offers an adventurous insight into Iceland's history and heritage, where the past meets the future. The museum shop on the ground floor is also the best one in town, where you'll find quality Icelandic design as well as objects related to the exhibitions on display.“

 

 


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica