Í tengslum við samnefnda sýningu í Bogasal 28.01.2012 - 28.08.2012 kom út vegleg sýningarskrá. Í bókinni er fjöldi mynda af kjólunum á sýningunni auk fylgihluta. Jafnframt eru í bókinni myndir sem sýna tíðaranda þess tíma sem sýningin spannar, árin frá ca. 1940-1970.
Í tengslum við samnefnda sýningu í Myndasal 29.10.3011-8.4.2012 hefur verið gefin út bókin Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu, með úrvali mynda af sýningunni. Í bókinni er grein um starfsferil Hjálmars eftir Ingu Láru Baldvinsdóttur fagstjóra Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni og ritaskrá Hjálmars í tímaröð. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður ritar formála. Ritstjóri er Bryndís Sverrisdóttir.
Lesa meira
|
Bókin var gefin út í tengslum við samnefnda sýningu í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands 16.6. - 9.10 2011. Í bókinni eru myndirnar af sýningunni auk greinar um ljósmyndun Péturs Thomsen. Ljósmyndir Péturs sýna hverfið Ásfjall í Hafnarfirði eftir að framkvæmdir stöðvuðust þar við efnahagshrunið 2008. Pétur hlaut styrk frá Þjóðminjasafninu til að vinna verkefnið. |
Endurskoðaður leiðarvísir á ensku um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár. Bókin var fyrst gefin út í tengslum við opnun nýrrar grunnsýningar safnsins árið 2004 og endurútgefin 2008.
Lesa meira