Bækur
Undrabörn - ný bók með ljósmyndum Mary Ellen Mark

Undrabörn hlaut tilnefningu

Ljósmyndabók Þjóðminjasafnsins hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2007

Í tengslum við sýninguna Undrabörn gaf Þjóðminjasafn Ljósmyndabókin Undrabörn tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunannaÍslands út samnefnda bók með ljósmyndum Mary Ellen Mark og Ívars Brynjólfssonar. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis árið 2007.

Einar Falur Ingólfsson ritar inngang og í bókinni er formáli eftir Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjavörð. Myndirnar má sjá í fullri stærð á sýningunni Undrabörn í Myndasal Þjóðminjasafnsins.

Mary Ellen Mark tók myndir af fötluðum nemendum í Öskjuhlíðarskóla, Safamýrarskóla og Lyngási og Ívar Brynjólfsson myndaði umhverfi barnanna. Jafnframt gerði Martin Bell heimildamynd um einn af nemendum Öskjuhlíðarskóla, Alexander Viðar Pálsson sem sýnd er daglega í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins 13-17.

Ljósmyndabókin Undrabörn tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunannaMilli ljósmynda Mary Ellen Mark og kvikmyndar Martin Bell er mikilvægt samspil sem dýpkað getur upplifunina af sýningunni í heild. Þeir sem skoða bókina eða sýninguna ættu því ekki að láta kvikmyndina fram hjá sér fara.

Mary Ellen er þekkt fyrir myndir þar sem horfst er í augu við raunveruleikann og hefur myndað heimilislaus ungmenni í Seattle, starf líknarstofnunar móður Teresu í Kolkata og vændishús í Mumbai svo fátt eitt sé nefnt. Þegar hún kom til Íslands árið 2006 heillaðist hún mjög af því starfi sem unnið er með fötluðum börnum á Íslandi.

Í kjölfarið leitaði Þjóðminjasafn Íslands eftir samstarfi við Mary Ellen Mark um að ljósmynda líf fatlaðra barna á Íslandi. Verkefnið hlaut meðal annars styrk úr Menningarsjóði Glitnis. Afraksturinn er sýningin Undrabörn og samnefnd sýningarbók. Á sýningunni og í bókinni eru einnig myndverk eftir undrabörnin sjálf.

Íslensku bókmenntaverðlaunin eru veitt árlega, annars vegar í flokki fræðibóka, hins vegar í flokki fagurbókmennta. Félag íslenskra bókaútgefenda hefur veg og vanda af verðlaununum. Að jafnaði eru fimm bækur tilnefndar í hvorum flokki og kunngert um hvaða bækur hljóta tilnefningu síðla árs.

Verðlaunin voru veitt 30. janúar og hlaut Þorsteinn Þorsteinsson verðlaun í flokki fræðirita fyrir bókina Ljóðhús en Sigurður Pálsson í flokki fagurbókmennta fyrir Minnisbók.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica