Á minjaslóð
Bók með greinum eftir Þór Magnússon
Út er komin bók með greinum eftir Þór Magnússon, Á minjaslóð. Safn ritgerða og ljósmynda gefið út í tilefni sjötugsafmælis höfundar 18. nóvember 2007. Greinarnar eru frá löngum starfsferli Þórs og spanna efni sem tengist silfur- og gullsmíði, fornleifum, byggingarsögu, útskurði, þjóðháttum, bókbandi, minningarmörkum og sagnaþáttum.
Sýnishorn úr merku ljósmyndasafni Þórs, sem varðveitt er í Þjóðminjasafni Íslands, er einnig birt í bókinni, ásamt heildarritaskrá hans, skrifum frá tímabilinu 1959-2007. Þjóðminjasafnið gaf bókina út í tilefni af sjötugsafmæli Þórs þann 18. nóvember síðastliðinn en hann gegndi starfi þjóðminjavarðar á árunum 1968-2000.

