Til gagns og til fegurðar
Sjálfsmyndir í ljósmyndum og klæðnaði á Íslandi 1860-1960
Út er komin vegleg ljósmyndabók eftir Æsu Sigurjónsdóttur listfræðing. Bókin Til gagns og til fegurðar er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu í Myndasal Þjóðminjasafnsins. Í bókinni er varpað fram spurningum um klæðnað og útlit Íslendinga 1860-1960 og sýnt hvernig ljósmyndir endurspegla sjálfsmynd þjóðarinnar á hverjum tíma.
Hér má líka fá svar við ótal spurningum um klæðnað og útlit, og brugðið er upp dæmum um klæðnað Íslendinga í fjölmörgum myndum í hundrað ár. Hvernig varð þjóðbúningurinn til? Af hverju vildu karlar ekki vera í þjóðlegum fötum? Hvenær fóru konur að ganga í buxum? Hversu íslensk er lopapeysan?
Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur hefur rannsakað sögu ljósmyndunar og menningarlegt og félagslegt hlutverk ljósmynda á Íslandi í fortíð og nútíð. Greinar eftir Æsu hafa birst í tímaritum, sýningarskrám og bókum hérlendis og erlendis. Má þar nefna bækur hennar um Sigríði Zoëga ljósmyndara (2000) og Ísland í sjónmáli um franska ljósmyndara á Íslandi 1845-1900 (2000). Bókin Til gagns og til fegurðar byggir á rannsóknum hennar á íslenskri búningasögu í ljósmyndum.
Bókin fæst í Safnbúð Þjóðminjasafnsins.

