Bækur
Endurkast

Endurkast

Íslensk samtímaljósmyndun

Í tilefni sýningarinnar Endurkast var vegleg og að mörgu leyti óvenjuleg ljósmyndabók gefin út sem gefur glögga mynd af sýningunni og þeim viðfangsefnum sem nútímaljósmyndun fæst við. Bókinni er ætlað að varpa ljósi á stöðu ljósmyndunar í íslenskri myndlist og skoða viðfangsefni og nálgun ljósmyndara sem unnið hafa með ljósmyndun sem listmiðil.

Nýlega stofnuðu átta íslenskir ljósmyndarar Félag íslenskra samtímaljósmyndara. Í kjölfar þess efndu þessir sömu ljósmyndarar til samsýningar í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands sem nefndist Endurkast - íslensk samtímaljósmyndun. Var sýningin á dagskrá Listahátíðar 2008 og vakti verðskuldaða athygli.

Ljósmyndaranir átta eru: Katrín Elvarsdóttir, Pétur Thomsen, Ívar Brynjólfsson, Bára Kristinsdóttir, Einar Falur Ingólfsson, Bragi Þór Jósefsson, Spessi og Þórdís Ágústsdóttir.
Textahöfundar bókarinnar eru Sigrún Sigurðardóttir og Hjálmar Sveinsson.

Ritstjórar eru Inga Lára Baldvinsdóttir og Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir

Bókin er til sölu í Safnbúð Þjóðminjasafns Íslands og þar er einnig hægt að panta hana í síma 530 2203 eða senda tölvupóst til: vala.olafsdottir@thjodminjasafn.is
Verð kr.: 4.990

Bókin er einnig fáanleg í öllum helstu bókaverslunum landsins




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica