Bækur
TÍZKA - kjólar og korselett
Í tengslum við samnefnda sýningu í Bogasal 28.01.2012 - 28.08.2012 kom út vegleg sýningarskrá. Í bókinni er fjöldi mynda af kjólunum á sýningunni auk fylgihluta. Jafnframt eru í bókinni myndir sem sýna tíðaranda þess tíma sem sýningin spannar, árin frá ca. 1940-1970.
Höfundur texta er Ágústa Kristófersdóttir og Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður ritar formála. Ritstjóri er Bryndís Sverrisdóttir.

