Fræðslu- og skemmtiefni
Fræðsluspor Fjölskyldunnar

Fræðslu- og skemmtiefni safnfræðslu Þjóðminjasafnsins

Þjóðminjasafnið stendur að útgáfu fræðslu- og skemmtiefnis fyrir börn og fullorðna í tengslum við grunnsýninguna og sérsýningar. Einkum er um að ræða ýmis konar bæklinga og kort. Með Ratleikjum og Fræðslusporum fjölskyldunnar verður skoðunarferð um safnið að skemmtilegum leik.

Fræðsluspor fjölskyldunnar og ratleikir safnsins eru frábærar leikjaþrautir sem fela í sér fræðslu um gripi grunnsýningar Þjóðminjasafnsins. Hægt er að nálgast safnleikina án endurgjalds í afgreiðslu safnsins.

  • Fræðsluspor fjölskyldunnar. Gersemar.
  • Fræðsluspor fjölskyldunnar. Ferðalög.
  • Ratleikur í Þjóðminjasafninu. Hvar eru dýrin?
  • Ratleikur í Þjóðminjasafninu. Hvar eru konurnar?

Einnig eru til ratleikir fyrir börn á ensku, dönsku, frönsku, þýsku og spænsku.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica