allt-greinar

Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky - 40 ár 2.3.2012 - 15.6.2012

Sýning í samstarfi við Skaksamband Íslands á munum og myndum tengdum skákeinvíginu 1972.
Í ár eru liðin 40 ár frá skákeinvígi þeirra Fischers og Spassky í Laugardalshöllinni. Skákborðið úr einvíginu sem varðveitt er í Þjóðminjasafninu verður í öndvegi.

 

Hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna Hjálmar R. Bárðarson í svart-hvítu 28.2.2012 12:05 - 13:00

 

Sunnudagsleiðsögn  26.2.2012 14:00 - 15:00

Sunnudaginn 26. febrúar kl. 14:00 mun Harpa Árnadóttir myndlistarkona veita leiðsögn um sýninguna Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur sem nú stendur í Þjóðminjasafni Íslands. Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Á sýningunni eru valdir búningar úr safni fjölskyldunnar. Leiðsögnin er ókeypis og allir velkomnir.

 

 

Hádegisfyrirlestur - ISLEX 22.2.2012 12:05 - 13:00

Miðvikudaginn 22. febrúar munu Halldóra Jónsdóttir verkefnisstjóri og Þórdís Úlfarsdóttir ritstjóri kynna netorðabókina ÍSLEX í hádegisfyrirlestri sem haldinn er í tilefni af 90 ára afmæli Norræna félagsins á Íslandi. Fyrirlesturinn er annar í röð fyrirlestra sem Norræna félagið og Þjóðminjasafn Íslands munu standa fyrir á afmælisárinu um norrænt samstarf á breiðum grundvelli. Fyrirlesturinn hefst í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands kl. 12:05. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Lesa meira
 

Daisy Neijmann og Gunnþórunn Guðmundsdóttir: Gleymska og tráma: Stríðsminningar í bókmenntum 21.2.2012 12:05 - 13:00

Fyrirlestraröðin Hvað eru minningar? Sagnfræðingafélag Íslands.

 

Sunnudagsleiðsögn 19.2.2012 14:00 - 15:00


Sunnudaginn 19. febrúar kl. 14:00 mun Ágústa Kristófersdóttir sýningastjóri við Þjóðminjasafn Íslands leiða gesti um sýninguna TÍZKA – kjólar og korselett. Ágústa mun m.a. segja frá kjólunum sem sjá má á sýningunni, en hver kjóll býr yfir einstakri sögu. Jafnframt mun Ágústa setja kjólana í samhengi við söguna og tíðaranda. Leiðsögnin er áhugasömum að kostnaðarlausu.

Lesa meira
 

Fyrirlestur í samstarfi við Ljósmyndarafélag Íslands 16.2.2012 12:05 - 13:00

 

Vilborg Davíðsdóttir: "An dat's de Peerie Story" - Rannsókn og túlkun á sögnum tveggja Hjaltlendinga 2.2.2012 12:05 - 13:00

Hádegisfyrirlestur í samstarfi við Félag Þjóðfræðinga.

 

Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur 28.1.2012 - 15.6.2012

Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Á sýningunni eru valdir búningar úr safni fjölskyldunnar.

Lesa meira
 

TÍZKA - kjólar og korselett 28.1.2012 - 15.6.2012

Fyrir tíma fatahönnunar á Íslandi störfuðu hér bæði  kjólameistarar og klæðskerar. Hér verða sýndir módelkjólar frá tímabilinu frá seinna stríði og fram til 1970.

 

Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu 29.10.2011 - 8.4.2012

Hjálmar R. Bárðarson fyrrverandi siglingamálastjóri var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. Hér getur að líta svarthvítar myndir úr safni hans, bæði landslagsmyndir og listrænar myndir.

Lesa meira
 

Þetta er allt sama tóbakið! 29.9.2011 - 19.2.2012

Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á sögu tóbaksnotkunar og baráttuna gegn henni allt frá upphafi á 17. öld fram til um 1990. Til þess eru notaðir gripir og ljósmyndir frá Þjóðminjasafni, gripir og gögn frá Krabbameinsfélaginu og tónlist sem notuð var í baráttunni gegn reykingum.

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica