allt-greinar

Sunnudagsleiðsögn 19.2.2012 14:00 - 15:00


Sunnudaginn 19. febrúar kl. 14:00 mun Ágústa Kristófersdóttir sýningastjóri við Þjóðminjasafn Íslands leiða gesti um sýninguna TÍZKA – kjólar og korselett. Ágústa mun m.a. segja frá kjólunum sem sjá má á sýningunni, en hver kjóll býr yfir einstakri sögu. Jafnframt mun Ágústa setja kjólana í samhengi við söguna og tíðaranda. Leiðsögnin er áhugasömum að kostnaðarlausu.

Lesa meira
 

TÍZKA - kjólar og korselett 28.1.2012 - 15.6.2012

Fyrir tíma fatahönnunar á Íslandi störfuðu hér bæði  kjólameistarar og klæðskerar. Hér verða sýndir módelkjólar frá tímabilinu frá seinna stríði og fram til 1970.

 

Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur 28.1.2012 - 15.6.2012

Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Á sýningunni eru valdir búningar úr safni fjölskyldunnar.

Lesa meira
 

Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu 29.10.2011 - 8.4.2012

Hjálmar R. Bárðarson fyrrverandi siglingamálastjóri var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. Hér getur að líta svarthvítar myndir úr safni hans, bæði landslagsmyndir og listrænar myndir.

Lesa meira
 

Þetta er allt sama tóbakið! 29.9.2011 - 19.2.2012

Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á sögu tóbaksnotkunar og baráttuna gegn henni allt frá upphafi á 17. öld fram til um 1990. Til þess eru notaðir gripir og ljósmyndir frá Þjóðminjasafni, gripir og gögn frá Krabbameinsfélaginu og tónlist sem notuð var í baráttunni gegn reykingum.

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica