Fyrir tíma fatahönnunar á Íslandi störfuðu hér bæði kjólameistarar og klæðskerar. Hér verða sýndir módelkjólar frá tímabilinu frá seinna stríði og fram til 1970.
Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Á sýningunni eru valdir búningar úr safni fjölskyldunnar.
Hjálmar R. Bárðarson fyrrverandi siglingamálastjóri var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. Hér getur að líta svarthvítar myndir úr safni hans, bæði landslagsmyndir og listrænar myndir.
Lesa meira